03.12.2008 16:04:38 / eX-Stebbi

Nýtt og spennan magnast!!

Jæja þá er það thanksgiving helgin að baki, eyddi vikunni síðustu með frændfólki mínu í Mahopac í New York og það var alger snilld, rölti um borgina með Sóley frænku og hún sýndi mér staðina þó svo að ´hun hafi verið að horfa ofan í kortið allan tímann.. "hmm tökum vinstri beygju hér... nei úps við erum aftur komin á times square" haha þetta var bara gaman.
    Svo er síðasti skóladagurinn í dag, quiz eftir hálftíma í líffræði, skila ritgerð og verkefni í tíma þar eftir og svo annað quiz eftir þann tíma.. svo er bara læra læra læra, fyrsta prófið á föstudaginn, eða fyrstu 2 prófin. Fer allt eftir hvernig mér gengur á könnuninni í dag, ef ég fæ gott á henni þá slepp ég við lokaprófið í áfangnum þar sem ég er með A- í honum.
Svo er bara heimkoma næsta fimmtudag!! Held að maður dragi einhverja með sér á Volcano Café þá í einn kaldann úff.

Sjáumst í næstu viku.... literally

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.11.2008 18:47:57 / eX-Stebbi

Styttist í próf og NY baby

Jæja síðasta sunnudag þá datt draumurinn alveg út með NCAA titilinn þar sem við töpuðum í vítaspyrnukeppni á móti Emory University eftir framlengingu. Hörmung að tapa þannig!!! Ég fékk ekki að spila þann leik útaf heilahristing, var ekki sáttur með það.

En jámm var í lokaprófi í BioLab í gær gekk svona semí á því held ég sé pottþettur með ágætis einkunn í áfanganum.
Svo er bara helgin að ganga í garð þar sem maður verður án efa rólegur þar sem maður er að spara sig fyrir New York í næstu viku, ætla að húkka mér far með Bree sem er markmaðurinn úr kvennaliðinu, hún ætlar að droppa mér af í New Jersey þar sem ég tek lest til NY. svo kynnist maður bara thanksgiving með frændfólkinu í Mahopac og djamminu um kvöldin með frænkunum sem ætluðu að draga mig með sér :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.11.2008 23:14:35 / eX-Stebbi

CHAMPIONE!!! NCAA here we come!

Jæja náðum sigri í úrslitaleiknum 2-1 sem tryggir okkur sæti í NCAA keppninni.
Byrjuðum að skora eftir 15 mín eftir að Arek skoraði mark utan teigs eftir eina fallegustu stoðsendingu sem ég hef á ævi minni séð. Og svo var þetta svona sitt á hvað sóknarbolti, þeir áttu skot í slá og svona. Svo fékk´eg að spreyta mig á toppnum og náði að pota boltanum inn í netið á 77 mín sem kom okkur í 2-0,.. þeir náðu svo að minnka muninn með einu fáránlegu marki, alveg upp í samskeytin utan teigs.

Svo voru veittar viðurkenningar og ég hreppti "Most valuable player" þannig maður er smá grobbinn með sig í dag.

En jæja nokkrir bjórar í kvöld og coctail night segir gummi, vakna svo snemma á morgun fara í sjúkraþjálfun og læra undir próf :)

tjátjá

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.11.2008 17:17:02 / eX-Stebbi

Jæja

Jæja þá er komið að því.. úrslitin wúllí wú... leikurinn byrjar eftir 2  tíma tæpa og þið getið fylgst með honum hér

http://www.futuremediaworld.com/upcoming.htm

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.10.2008 12:37:41 / eX-Stebbi

Nýtt já hvað er títt...?

Það er nú lítið búið að vera ske hjá manni síðustu vikur þar sem maður var að taka miðanna prófin og stóð mig bara ágætlega held ég,..fékk C+ sem er 8 í einu faginu, B í öðru, B- í öðru og A í rest þannig ég er bara sáttur.
    Fórum út á lífið síðustu helgi og það endaði bara með að vera legendary! Byrjuðum að hella í okkur heima hjá Gumma og fengum svo far á klúbbinn.. sátum aftan á pallbíl á fleygiferð, ég, Gummi, Hlynsi og Dennis frá þýskalandi,.. þess má geta að þessi Dennis er alltaf að lenda í einhverju leiðinlegu, hann er svo lítill og horaður að menn bara standast ekki freistinguna að pína hann örlítið á hverjum degi. T.d. þá var hann í party einhverntíman heima hjá Jay sem er í skólanum hérna og honum var stungið inn í hundabúr og hafður þar allt partyið haha.. en jámm til að enda þessa pallbílasögu þá sátum ég, gummi og hlynur bakvið húsið á bílnum en Dennis sat alveg aftast á pallinum þannig hann var með vindinn i andlitið, kemur Gummi og opnar bjór og hellir honum útfyrir en hann fer ALLUR í andlitið á Dennis! og auðvitað brosti Dennis bara og rétti út tvo þumla voða ánægður, þá tók Gummi annan bjór og tæmdi yfir hann aftur. Núna leit Dennis út eins og róni, grindhoraður og lyktaði eins og þjóðhátíðartjald á mánudagsmorgni. Og núna fórum við á klúbbinn. Þar náði ég að húkka Dennis upp við eina stelpu með að taka "haaaaave you met Ted" trikkið úr How i met your mother, nema auðvitað sagði maður "haaaave you met Dennis" svo fór ég í burtu bara og hann endaði nú bara með henni allt kvöldið. Seinna kom í ljós að hún var gift en það er bara aukamál.
Þegar við vorum að fara heim þá tekur Gummi sig til og ætlar að klifra uppá pallinn á bílnum og stígur á dekkið og nær einhvernveginn að stíga akkurat á ventilinn og sprengir dekkið! Þannig við sátum öll föst þarna fyrir utan klúbbinn í klukkutíma.

Halloween er í kvöld og ætlum við liðið að hittast heima hjá Gumma í pizzuveislu eða eitthvað rólegt þar sem við eigum leik á morgun, annars verður tekið vel á því á morgun held ég. Og víííííjjjjj það er ´buið að affrysta reikninginn minn þannig ég get hætt að lifa eins og eþíópíubúi og farið að geta fengið mér almennilega að booorða og svona.

En ég var að spegulera með búninga... mér bauðst CatWoman búningur sem yrði sviplaust talið vera hommalegt hérna, eða þá Jack Sparrow eins og ég gerði í sumar eeeða þá ég fái lánaðar hækjur og vefji mig í sárabindi og verði bara INJURY MAN fyrst ég er búnað vera meiddur allt seasonið! Hvað segiði? og já ég ætla vera með myndavél þannig það koma fullt af myndum á netið

Kveðja Steve Brian Hawksson


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.10.2008 01:39:02 / eX-Stebbi

Besti Hrekkur í heimi!!!

Við peyjarnir keyptum okkur grímur um daginn í hrekkjavökubúð sem voru vægast sagt ógeðslegar! Allavega myndi ég lippast niður ef ég myndi mæta manni með svona grímu í dimmu húsasundi einhverja nóttina,, en samt sem áður,, já við tókum þennan snilldar hrekk með grímurnar :) Fórum heim til Jay´s vinar hans Gumma og bönkuðum á gluggann hja´honum og biðum eftir að hann kæmi út, kom ekki gaurinn út með tvo pitbull hundana sína og sá svo þrjá svartklædda menn í hettupeysum með hvítar grímur bara starandi á sig og sögðu ekki neitt, og hann sagði að hann hefði verið skíthræddur,.. við tókum svo sama hrekkinn á Jimmy sem býr heima hjá Jay og líka Chris nágranna Gumma en best var þó þegar við tókum þýsku gaurana í liðinu daginn eftir... úff.. bara svo fólk viti hvernig grímur þetta eru þá er ég með myndir hérna af þessu......
http://www.novelties4parties.co.uk/images/P/robot-mask-white-for-own-decoration.jpghttp://imgs14.stockmediaserver.com/wh18/th170/Fusion/JFstk_6439.jpg

þetta er svona frekar líkt því hvernig við litum út, og við fórum til þeirra og gummi bankar á gluggann á svölunum hjá þeim og einn af þeim kemur og opnar svalarhurðina og er ekki lengi að hoppa aftur inn þegar hann sér gumma, svo kemur annar út með ruslið og fer að leita að gumma og er eitthvað að reyna fá að vita hver þetta sé og ætlar svo að snúa við þá sér hann tvo aðra standa og horfa á sig sem vorum ég og hlynur haha þá varð hann mjööög hræddur og hoppaði uppá svalirnar hjá sér þar sem hinir þjóðverjarnir voru og horfðu bara á okkur, eina sem við gerðum var að horfa á þau og segja ekki neitt, svo hoppar gummi uppá svalirnar hjá þeim og hlynur líka og standa alveg upp við þau en ég stend ennþá fyrir utan svalirnar, svo erum við búnir að standa þarna í smá tíma þá gefum við merkið um að fara og löbbum í burtu bara, en neinei þessir þjóðverjar eru svo miklir jaxlar að þeir elta okkur, við hlaupum þvert yfir golfvöll í svarta myrkri og náum svo að stinga þá af, tókum einhvern hring og enduðum heima hjá okkur. Svo tíu mínutum seinna þá er bankað á hurðina hjá okkur, þá eru það þjóðverjarnir alveg þvílíkt stressaðir að sega að þrír grímuklæddir menn hefðu komið til sín og bara horft á sig, og svona til að lýsa því betur þá var annar með tárin í augunum og gat varla talað, hinn var svo hræddur að hann gat varla hætt að hlæja, og hinn var svo mikill jaxl að hann gat ekki hætt að tala um að hann hefði farið á eftir þeim til að reyna fá að sjá andlitið sem var reyndar mjög flott hjá honum, ekki hefði ég gert þetta haha! og við vorum auðvitað bara "no way!! are you kidding?" bara eins og við vissum ekkert um þetta..... svo er ekki talað um annað í skólanum en grímuklæddugaurana núna :) og já þess má geta  að þjóðverjarnir voru svo hræddir að þeir hringdu í lögregluna og hún mætti á svæðið með kastara að leita í runnum og milli húsa að þrjótunum :)

Annars er fínt í fréttum, vorum að spila áðan og unnum 8-2, ég átti skot í innraverða stöngina og í markspyrnu, frekar glatað! en jámm svo er ég bara að far ahalda áfram að læra :) en ég held að þetta sé besti hrekkur sem ég hef gert í lífi mínu...

» 9 hafa sagt sína skoðun

09.10.2008 21:44:46 / eX-Stebbi

Íslenskir dómarar greinilega snillingar!

Já hvað get ég sagt! Er kominn í fall break þannig enginn tími þangað til á mánudaginn wúbbídú!! Slapp við að taka próf í gær og fæ að taka það á mánudaginn sem er gott mál því þá hef ég alla helgina til að læra :) Vorum að keppa í gær í Virginíu einmitt á móti bræðraskóla okkar Virginía Wesleyan og vá hvað þetta er flottur skóli hjá þeim!! Þegar ég kom inn í íþróttahúsið hjá þeim þá var alveg risastór innanhús salur þarna, 3 skvassvellir, flott gym, klettaklifursveggur, cafétería, poolborð, innisundlaug og ég veit ekki hvað meira! Og völlurinn var þvílíkt flottur upplýstur og svona og auðvitað sungið ameríska þjóðsönginn fyrir leikinn eins og er alltaf gert. Hlynsinn tók sólóið í söngnum við mikinn fögnuð áhorfenda enda með rödd engils þessi elska. Ekki af ástæðulausu að hann er aðalsöngvarinn í hljómsveitinni okkar hérna úti Ice Guys. Förum að troða upp á stöðum í bænum án efa við mikinn fögnuð allra á svæðinu. En já það svartasta við leikinn voru dómararnir! Og þá er ég ekki að tala um litarhaft þó aðaldómarinn hafi verið nú þeldökkur,..neinei þetta voru lélegustu dómarar sem ég hef sjáð á ævi minni!! Hver ákvörðun sem hann tók eftir ákvörðun varð alltaf verri og verri og svo í lokin þá sló hann sjálfan sig útaf laginu þegar hann gaf leikmanni í hinu liðinu sitt annað gula spjald og ætlaði ekki að reka hann útaf, leikmaðurinn sparkaði strák hjá okkur niður þegar hann lá og alveg bókað mál gult spjald eða beint rautt, frekar gróft og bara verið að hugsa um að meiða andstæðinginn, og svo þegar dómarinn fattaði að þetta var annað gula spjaldið ´hjá stráknum og hann þurfti að fara reka hann útaf þá labbar hann að hliðarlínunni og segir við þann sem er að skrá leikinn niður að hann ætli að taka gula spjaldið til BAKA!!!!! á þetta að vera hægt í fótbolta??? Og jámm svo að lokum þá spilaði þjálfarinn bara út 2 varamönnum, þannig hann tók 24 menn með í leikinn og aðeins 13 fengu að spila þó að það séu fríar skiptingar í þessu!!
    En jááá hvað segiði er kreppan að taka ykkur í bossalinginn? maður er bara farinn að spá hvort maður eigi eftir að þrauka út hérna restina af önninni

Chao bella tutti frutti


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.10.2008 22:30:19 / eX-Stebbi

US AND A!!

Vá mér finnst eins og ég sé í tímavél hérna! tíminn ótrúlega fljótur að líða,, alltaf fyrr en varir þá er vikan liðin, 2-3 próf búin og önnur helgi komin. En já leikirnir eru búnir að vera ágætir hjá okkur fyrir utan eitt tap síðustu helgi, ég tók reyndar ekki þátt í þeim leik útaf meiðslum, en við kepptum í gær og unnum 4-0. Fórum svo eftirá heim til Gumma í beerpong sem er snilldarleikur!! Skelltum okkur svo í party hjá Jay vin hans Gumma og vorum þar alla nóttina.
En já þeir sem þekkja mig ættu að vita að ég er seinheppinn strákur.. fór um daginn á hjólinu mínu útí búð og ætlaði að hjóla heim með pokana og missti stjórn á stýrinu og endaði oní skurði... hrikalega hallærislegur gaur haha liggjandi þarna á grasinu pokarnir dreifðir útum allt og stórt sár á leggnum.

Fall break næstu helgi hjá mér þannig það verður kannski skellt sér á ströndina eða kannski í tívolí aftur úff hvað ég væri til í það :D


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.09.2008 02:58:28 / eX-Stebbi

Spilaði loksins wúwú

Jámm jámm og jæja... Skellti mér á tjúttið í gær með peyjunum, enduðum á að fara bara út að borða á ruby tuesday þar sem afgreiðslustelpan var nákvæmlega eins og Haley úr one tree hill. skal taka mynd næst hehe...
Enjámm svo enduðum við með að fara heim til Gumma og skellt í sig 3 bjórum þar og farið á klúbbinn þar sem var troðið af fólki og fólkið hérna kann ekki að dansa.. það er bara svona nánast að stunda kynlíf á gólfinu frekar spes... svo eftir þennan rosa klúbb var farið heim til gumma aftur að glamra á gítarinn, var kominn heim kl 5 og vaknaði 10 í morgun af stressi við að sofa yfir img í leikinn í dag kl 1 og spilaði fyrstu 25 mín af fyrri hálfleik og náði að pota honum 2svar yfir marklínuna á þeim tíma og svo fékk ég 20 mín í seinni hálfleik sem var ágættt og virðist lærið á mér á góðri leið með bata..
en þangað til næst... TA TA    

» 5 hafa sagt sína skoðun

27.09.2008 21:46:19 / eX-Stebbi

Heiðskýr himinn og fuglasöngur

Jæja veðrið er nú ekki búið að vera uppá marga fiskana undanfarna daga en það er að skána. Var að koma úr sólbaði við laugina og held ég hafi nú bara tekið þennan fína lit, er orðinn svona svissmokka með dass af kirsjuberja lit. Sem stendur nú ágætlega uppúr fjöldanum hérna þar sem flestir eru bara regular kaffi á litinn tsss hehe :D
En já erum búnir með 2 leiki í bikarnum.. unnum fyrsta 13-0 og næsta 9-0 og svo var leikur í dag en ég tók ekki þátt í honum útaf meiddi... og hann tapaðist 1-0 :S sem er annar leikurinn sem við töpum núna. hrikalegt
en annars baraaa próf annan hvern dag liggurvið og þvílíku verkefnin það er ekkert verið að halda aftur af neinu.. hlakka til að komast í "frí" um jólin og fara að landa niðrá bryggju úff :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.09.2008 17:33:27 / eX-Stebbi

Sprautur og kalt veður!

Jámm það er bara búið að vera skítakuldi síðustu 2 daga alveg niðrí 23°C :P sem mér fannst reyndar bara fínt. Jjæja er orðinn fínn af veikindunum og loksins hættur að æla! alveg yndislegt.
Svo var ég að fá bréf frá "The Dean" um að ég ætti eftir að fara í sprautur annars yrði ég rekinn úr landi haha :D því verður reddað á morgun. Sit eins og er útá grasi fyrir utan skólann í sólinni bara mjög hlýtt og gott veður í dag. Svo á morgun verða 2 próf hjá mér í Criminal Justice sem ég hélt væri í gær þannig ég er búnað læra undir það próf en maður tekur smá upprifjun fyrir það, og svo er próf í social problems á morgun... og leikur á laugardaginn... jámm held að planið út restinna af vikunni sé komið bara hjá mér..

hvað er að f´retta af ykkur?        

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.09.2008 22:14:10 / eX-Stebbi

Nýtt í fréttum!

Jæja hvað get ég sagt,... er hérna í veikindum búnað vera æla og æla og æla.. kominn með 8pack á magan af öllum átökunum... rakaði á mig mustash í dag þegar ég vaknaði... spá í hvort ég eigi að fá mér mullet eins og hinir strákarnir.. hvað finnst ykkur? mullet eða ekki mullet?

en já ég ætla nú bara segja frá leikjunum... fyrsti leikurinn okkar fór 0-1 semsagt tap en svo unnum við næsta leik 2-0, næsti leikur fór 5-0 fyrir okkur og svo næsti 7-2 fyrir okkur svo kepptum við í gær og unnum 5-1 eftir við fórum 0-1 undir... og ég spilaði veikur í leiknum í ógeðslegum hita!! endaði svo bara með að líma mig við klósettið í alla nótt rosalega gaman.... haha

en já hlynur tók fullt af myndum í gær sem ég ætlahenda á myspace annaðhvort bara seinna í kvöld eða á morgun...

heyrumst bæjóóó

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.09.2008 14:55:48 / eX-Stebbi

Lífið í USA

Jæja vegna beiðni systur minnar ákvað ég að fara blogga aftur! mætti halda að árið 2006 væri bara skollið á aftur!! haha

En jámm ég er eins og er staddur í USA í námi við North Carolina Wesleyan College NCWC á fótboltastyrk með exercise science sem major.

Það er nú lítið búið að vera gerast hjá mér síðustu dagana annað en að læra bara og reyna koma sér vel fyrir.. ég tók nokkrar myndir sem ég ætla henda inná myspace og facebook þegar kemur að því að ég nenni því. Var loksins að redda borði og stólum í íbúðina okkar áðan frítt!! LOKSINS... orðinn marinn og blár á rassinum af að sitja á gólfinu að reyna læra... þannig þá eru komin 3 rúm, borð og 4 stólar í íbúðina! ekki sjabbí skal ég segja þér! svo er það bara reyna finna sófa og stofuborð í kósýstofuna okkar.

Og já félagarnir sem búum saman eru ég, Hlynur Hauksson og Þórir Guðna. Og þar sem ég er pabbinn í hópnum þá er ég látinn elda, tsss enda ekki skrítið þar sem ég er úrvals kokkur af hæsta gæðaflokki!!! you know, two minute in heaven is better than one minute in heaven!!!

Er búinn að vera standast í meiðslum, tognaður framan í læri en það er orðið nánast 100% gott og ég fæ að spila í dag, er ekki búnað vera með á æfingum í heila viku og fór fyrst í gær og náði að næla mér í blóðnasir í 10 mín fótboltaspili!!! klaufi=ég....

Hendi inn færslu aftur við tækifæri þegar eitthvað rosalega skemmtilegt er búið að gerast!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.02.2006 22:38:15 / eX-Stebbi

Laminn í andlitið í vinnu í dag!!! :(

Já ég var að koma úr vinnu núna, vorum að landa úr guðmundi, svaka fjör. Var að vinna með gaur sem kann varla að tala ensku hvað þá íslensku. En jámm það var gaman af honum :) lenti samt í því að vera kýldur í vinnu í dag!!! Sprakk neðri vörin á mér og fossblæddi úr nefinu á mér. Ég var að reyna losa kassa og fékk hann oná buttann á mér og klemmdi mig það var EKKI þægilegt og þá flippaði ég og ætlaði að reyna losa annan kassa sem var fastur og ég eikkað fór að lemja í hann en hann losnaði ekki þannig ég fór í kassann við hliðiná togaði í bandið á kassanum og bandið slitnaði ég kýldi sjálfan mig í andlitið... HAHHA ég er seinheppnasti maður í heimi!!! Og svo þegar ég var búnað láta blóðnasirnar hætta þá fór ég að húkka af á bryggjunni, reyna róa mig niður en neinei þá hrynur bretti á bryggjunni og ég fæ kassa oná tána!!! Ekki nóg með það að þegar ég var að koma úr pásu og fór niðrí bátinn þá hoppaði ég inní skápinn sem var verið að landa úr og það festist kassi á færibandinu sem fer útúr skápnum og kassinn datt af færibandinu og beint oná hnéð á mér.. þetta var alveg æðislegt!!!!

En jámm nóg um það ég er farinn á djammið, passiði ykkur að kýla ekki ykkur sjálf í andlitið, það er ekki gott! :/ haha


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 01:52:19 / eX-Stebbi

Já lítið í fréttum...

Já það er lítið að frétta af stebbanum annað en að ég er búnað vinna svolítið mikið... Fékk loksins hita í 2skipti síðan ég var 13 ára.. Hlaut að koma að essu, var ónýtur um helgina og marr er bara búnað vera edrú núna síðustu 3 helgar :D algert stuð hehe.... En bankabókin er orðin besti vinur minn núna :D:D:D:D:D

vertíðin er bara í góðum gír eins og er en þetta fer ábyggilega brátt að lægja þá kíkir maður í bæinn :)

"Má ég fá köku??"


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 30027
Dagsetning
30. júlí 2010
Klukkan
Textabox